Gleði er rétta orðið yfir þennan dag..Enda laugardagur,búið að versla sér öl og bíður maður bara eftir því að geta opnað eins og eitt stk og skellt því í sig..Getur líkaminn ráðið við öll heimsins veikindi sem eru í boði fyrir mann í dag?Þarf maður virkilega að borða einhver lyf til að hjálpa líkamanum að ráða við þau?Mér er spurn.Hef alltaf reynt að forðast það að fara til læknis.Fór fyrir stuttu til læknis til að fá sprautu við hettusótt.Þegar sprautan var búin var mér tilkynnt það að ég gæti fengið hita,mislinga og hálskirtlarnir gætu bólgnað.Ég fékk 2 af þessu.Er spá í bara framvegis að hundsa öll lyf og sprautur og leyfa líkamanum að sjá um þetta sjálfur.Og ef hann ber það ekki þá verður bara að hafa það.Hvernig var þetta nú hérna í gamla daga.Ekki voru menn að bryðja lyf í öll mál.Þar var það bara karlmennskan sem réði ríkjum.Gísli á Uppsölum mætti alltaf til vinnu og var aldrei veikur...Hvað er að frétta af konunni sem fór í hunguverkfall?Er hún lifandi?Er séns á að hitta hana blekaða á Hvebbanum í kvöld..Sæl að sinni.
laugardagur, febrúar 04, 2006
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Jahérna...Upplifði í gær svaakalega bílferð með gulum vagni..Steig upp í vagninn,settist og svo hófst ferðin.Við erum að tala um það að strætisbílstjórinn steig bensíngjöfina niður í jörðu og þrykkti bílnum af stað.Ekki frá því að það hafi órað fyrir smá reyk frá dekkjunum.Í beygjurnar brunaði hann á 50-60 km hraða,og í einni slíkri beygju þá mætti hann hinum vagninum s.s vagn nr.16.Þá skellti hann bara upp derhúfunni og nikkaði til stelpunar sem var að keyra hinn vagninn.Nú skil ég kannski afhverju strætisvagnar eru að lenda í árekstrum út um allan bæ.Ef aksturslagoð er svona..Kveð að sinni.
miðvikudagur, febrúar 01, 2006
Jah hérna..Hann er mættur sprækari sem aldrei fyrr...Þá hugsa menn,hver er maðurinn?.Maður er nefndur Jón Ómar Jóhannesson hinn mikli og víðförli bloggari..Sá drengur fannst fastur upp í tré,nagandi neglur eftir hörkuspennandi viðureign Íslendinga og Rússsa..Þá spyrja menn sig.Ætlar maðurinn að byrja að blogga eftir svona langt hlé..Hinn almenni almúgi heldur eflaust að rithöndin hafi glutrast...En nei ég held nú ekki..Hér er ég mættur sprækari sem aldrei fyrr..Ef menn tala að comeback Hemma Gunn sé rosalegt,þá skjátlast þeim..Ef fólk heldur að Kallarnir.is séu málið,þá skjátlast þeim..www.jommi.blogspot.com er komið til að vera..Þá hugsa menn sig tvisar um og segja:"Hvað ætlar maðurinn eiginlega að blogga um? Handbolta?"..Ég svara því auðvitað játandi enda er þetta mál líðandi stundar og um boltann rætt eflaust á öllum kaffistofum..Mun þessi síða þá já má eflaust segja hin nýja kaffistofa netverjans..Ég kveð að sinni,sprækari sem ALDREI fyrr...
föstudagur, mars 04, 2005
Jæja þá er Idolið búið.Kóngurinn hefur kvatt keppnina fyrir fullt og allt.Söknuðurinn af Kónginum verður mikill.Enda hefur hann farið nokkurn veginn sína leið í þessari keppni.Nema hvað undir lokin.Þá var hann búinn að breytast.Farinn að líkjast öllum hinum.Leið illa þegar hann þurfti að kveðja hina.Allavega sagði hann það,hvort sem hann meinti það yður ei.
En föstudagskveld sem þýðir bara eitt.Laugardagur á morgun og þá verður skálað.Kveldið er ekki alveg ráðið,en nóg er að hafa.Spurning með grillstemmingu.En kveð að sinni úr voginum góða og tileinka ég þessu blogginu,KÓNGINUM ! ! !
En föstudagskveld sem þýðir bara eitt.Laugardagur á morgun og þá verður skálað.Kveldið er ekki alveg ráðið,en nóg er að hafa.Spurning með grillstemmingu.En kveð að sinni úr voginum góða og tileinka ég þessu blogginu,KÓNGINUM ! ! !
laugardagur, febrúar 26, 2005
Djöfull væri ég til í að prufa einnota sturtu ef hún væri til.Og ef svo væri hvernig yrði hún þá? ?
Bara krani sem maður gæti verið með í vasanum og svo uppblásna slöngu sem myndi tengjast í kranann,og svo bara vatnstank í íþróttatösku.En þetta yrði samt algjörlega háð því hvursu langa sturtu menn myndu ætla sér í.Hvað ætli maður noti c.a mikið af vatni þegar maður fer í svona 15-20mín langa sturtu? ?10-15ltr eða....
Bjór í hönd,fyllerí á morgun og þynnka á sunnudag? ? Verður þessi helgi einhvað betri? ?
Kveð úr voginum góða...
Bara krani sem maður gæti verið með í vasanum og svo uppblásna slöngu sem myndi tengjast í kranann,og svo bara vatnstank í íþróttatösku.En þetta yrði samt algjörlega háð því hvursu langa sturtu menn myndu ætla sér í.Hvað ætli maður noti c.a mikið af vatni þegar maður fer í svona 15-20mín langa sturtu? ?10-15ltr eða....
Bjór í hönd,fyllerí á morgun og þynnka á sunnudag? ? Verður þessi helgi einhvað betri? ?
Kveð úr voginum góða...
miðvikudagur, febrúar 23, 2005
Ætli það sé viðeigandi að mæta í náttfatapartý eingönu í stuttermabol ? Ef maður sefur bara í þeim klæðnaði,ætti maður þá ekki að mæta í því.Mér er spurn.Aldrei skilið fólk sem getur sofið í náttbuxum eða bara í náttfötum yfir höfuð.Oft þegar maður hefur sofnað í fötum þá vaknar maður alltaf upp á nóttunni til þess að fara úr fötunum,einfaldlega vegna þess að maður er bara að leka niður af svita.Oftast þegar ég hef tekið mig til að sofa á sprellanum þá kemur alltaf mjög óþægileg tilfinning í líkama minn.Ekki að ég sé spéhræddur við sjálfan mig,alls ekki.Bara þegar ég er sofnaður þá fer mig alltaf að dreyma að ég sé í vinnunni bara liggjandi undir sæng á sprellanum,og allir notturlega að glápa á mig.Eða ég fæ það á tilfinninguna um að það sé einhver inni í herbergi bara að stara á mig útaf því að ég sé sofandi á sprellanum....
laugardagur, febrúar 12, 2005
Össöss...Menn eru búnir að rífa sig á fætur fyrir allar aldir á laugardegi..Lá í einhverri skítapest í seinustu viku..Gat því ekkert skellt mér út á lífið þá..En stefnan er sett á mikla gleði í kveld..Boðið í teiti hjá vinnufélaga og þar má sko bóka FYLLERÍ...Enda er þessi vinnustaður mjööög blautur sem er bara af því góða..En drulluspaðinn hann Helgi datt út í gær úr Idolinu og ég öskraði mig hásann.Þvílík gleði sem braust út hjá mér.Svo notturlega var þetta lag sem hann valdi algjör hörmung.Bara lag sem kellingar geta sungið.Auðvitað þurfti hann notturlega að fella smá tár.Ég skil það ekki.Þetta er ekkert annað en stór Kareokí keppni sem er send út í beinni útsendingu á stöð2.Og fólk er alveg að missa sig í keppninni.Æji skil þetta ekki...
Kveð að sinni með bros á vör:)
Kveð að sinni með bros á vör:)
miðvikudagur, janúar 26, 2005
2.dagurinn í röð þar sem maður liggur heima eins og aumingji.Er búinn að vera að drepast í bakinu seinustu 2daga.En já Þorrablótið var fínasta skemmtun,veit samt ekki með Singstar keppnina.Það var augljóslega svindlað á okkur.En já ísland er nú ekki að gera neina rósir þarna á Hm í Túnis.Rétt náðu jafntefli við Tékka eftir að hafa verið 9mörkum undir þegar 10min voru eftir.Svo kom skítatap á móti Slóvenum í gær eftir að hafa leitt leikinn með 3-4 mörkum allan tímann.En þetta segjir bara allt um okkar styrk í handbolta.
fimmtudagur, janúar 20, 2005
Það fór náttúrulega eins og ég hafði spáð.Mínir menn lögðu hörkusterkt lið Exeter í gær 2-0.
Núna stefnir í klassahelgi.Þorrablót og gleði á laugardag.Stefna menn að byrja snemma dags eða um 3-4 leytið í Singstar rugli.Hef það þá ekki lengra að sinni.
Núna stefnir í klassahelgi.Þorrablót og gleði á laugardag.Stefna menn að byrja snemma dags eða um 3-4 leytið í Singstar rugli.Hef það þá ekki lengra að sinni.
miðvikudagur, janúar 19, 2005
Stórviðureign í kvöld.Mínir menn í United mæta utandeildarliðinu í Exeter.Á alveg eins von á hörkuleik.Sáum t.d Liverpool liggja fyrir Burnley í gær.Þá held ég að allar titilvonir Liverpool manna séu horfnar.Sé þá ekki fara að vinna meistaradeildina.Kannski er þetta bara líka eina keppnin sem United menn eiga séns í,og þó ! !
- Rechargeable.com er...
- ...Nonninn sem tjáir sig !
- Sláið á þráðinn
- Email:jommi@visir.is
- MSN:jommi716@hotmail.com
- Dót og fl...
- Gestabók
- Styrktaraðilar

